Grunnur til þess að skapa
Námsefni í listgreinum á framhaldsskólastigi
​
Grunnþættir : Sköpun, læsi,
​
Hæfniþrep : Hæfniþrep 2
Tímalengd : 3 kennslustundir
Frumlitir
​
Framkvæmd:
Í þessu verkefni rannsaka nemendur frumlitina þrjá, gulan, rauðan og bláan. Nemendur eiga því næst að mála sjálfsmynd og nota aðeins frumlitina ásamt hvítum til þess að blanda rétta liti í málverkið. Nemendur geta tekið sjálfsmynd af sér og notað sem fyrirmynd eða verið með spegil fyrir framan sig á meðan þeir teikna og mála.
Í verkefninu læra nemendur að vinna með frumlitina og hvernig þeir blandast. Nemendur æfa sköpunarkraftinn með því að skapa sjálfsmynd, efla myndrænt læsi og læra um samsetningu lita.
Áætlaður tími : 3 kennslustundir
1. tími: Kennarinn kynnir frumlitina og hvernig þeir blandast. Því næst er verkefnið kynnt og vinna hefst.
2. tími: Vinna heldur áfram.
3. tími: Vinna klárast, í lokin eru umræður, myndir skoðaðar og nemendur segja frá sinni sköpun.
Bjargir: Blöð, arkir, blýantur, málning, penslar, spegill/ljósmynd af nemanda.
Lærdómsviðmið : þekking - leikni - hæfni
Að nemandi:
-
Þekki frumlitina, eiginleika þeirra og hvernig þeir blandast.
-
Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.
-
Öðlist hæfni í myndlæsi og skapandi hugsun.
-
Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.
-
Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.
-
Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.

Litafræði
Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir