Grunnur til þess að skapa
Námsefni í listgreinum á framhaldsskólastigi
​
Grunnþættir : Sköpun, læsi,
​
Hæfniþrep : Hæfniþrep 1
Tímalengd : 1 kennslustundir
Hugmyndaleikur
​
Framkvæmd :
Þetta verkefni er hópverkefni og felur í sér að efla myndræna hlustun nemenda og efla hæfileika þeirra til þess að lýsa útkomu eða hugmynd á skýran hátt.
Nemendur eru tveir saman og sitja á móti hvor öðrum. Þeir skiptast á að lýsa hugmynd og teikna, fyrst byrjar annar þeirra að segja hvað hinn ætti að teikna og svo skiptast þeir á og í sameiningu klára þeir myndina. Markmiðið er þó að í hverri hugmynd komi eitthvað nýtt fram eða ný lausn sem tengist myndinni. Þetta verkefni æfir nemendur í samvinnu og eykur hópefli. Nemendur æfa sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós.
​
Áætlaður tími : 1 kennslustund
​
Bjargir : Blöð, arkir, blýantar, pennar, litir.
Lærdómsviðmið: Þekking – leikni- hæfni
Að Nemandinn:
-
Efli myndræna hlustun og hæfileika til þess að miðla hugmynd á skýrann hátt.
-
Verði virkur í lýðræðislegu samfélagi.
-
Efli leikni í hópavinnu.
-
Geti unnið á sjálfstæðan hátt undir leiðsögn.
-
Öðlist hæfni í myndlæsi og skapandi hugsun.
​

Sköpun
Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir