Grunnur til þess að skapa
Námsefni í listgreinum á framhaldsskólastigi
Skynjun
Framkvæmd:
Nemendur rannsaka ljós í gegnum listina. Nemendur gera ýmsar prufur með lýsingu, hvað efni hleypa ljósi í gegn, hvernig myndast spennandi lýsing og taka ljósmyndir af útkomuni. Nemendur gera nokkrar módelskissur og prufa sig áfram með að vinna beint í efnin. Nemendur búa til nokkur skissumódel og prufa sig áfram með því að nota lampa til þess að sjá útkomuna, síðan eru teknar myndir. Nemendur æfa sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós. Nemendur efla myndrænt og rýmislegt læsi og eru minntir á sjálfbærni með efnisnotkun. Nemendur auka færni í að tjá sig um eigin list.
Áætlaður tími : 4 kennslustundir
1. tími: Verkefnið kynnt, vinna hefst hefst.
2. tími: Vinna heldur áfram, myndir teknar.
3. tími: Vinna heldur áfram, myndir teknar.
4. tími: Vinna heldur áfram, í lokin er yfirferð, þar sem nemendur kynna sína sköpun.
Bjargir: Afgangs pappír, leir, spýtur, plast, pappi, hvaða efni sem hægt er að endurnýta, rusl, lím, límbyssa, skæri og skurðarhnífur.
Lærdómsviðmið : þekking - leikni - hæfni
Að nemendur:
-
Öðlist þekkingu á mismunandi efnum og samspil þeirra við ljós.
-
Öðlist hæfni í skapandi hugsun.
-
Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.
-
Öðlist hæfni í mynd-og rýmislæsi.
-
Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.
-
Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.
-
Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.
-
Ölist hæfni í að tjá tilfinningar og upplifanir í gegnum list.
Grunnþættir : Sköpun, læsi, sjálfbærni
Hæfniþrep : Hæfniþrep 3
Tímalengd : 4 kennslustundir

Ljós og list

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir
Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir