top of page

 

 

Grunnþættir :  Sköpun, læsi, sjálfbærni

Hæfniþrep :     Hæfniþrep 3

 

Tímalengd :     5 kennslustundir

Leiðin

Framkvæmd :

Nemendur búa til spennandi ferðalag í gegnum rými. Nemendur ímynda sér að manneskja sé stödd í rýminu og ferðist í gegnum það. Huga þarf að hverskonar upplifun nemandinn vill ná fram. Á leiðin að vera þröng, opin, spennandi, brött, hlykkjótt eða bein?

Hér má tengja verkefnið við pælingar á borð við á hvaða leið mannkynið er, hver er sýn nemandans á þá leið, hvað vill hann benda á, draga fram eða mótmæla.

Nemendur þjálfa sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós. Nemendur efla myndrænt og rýmislegt læsi og eru minntir á sjálfbærni með efnisnotkun. Nemendur auka færni í að tjá sig um eigin listsköpun.

 

Áætlaður tími : 5 kennslustundir

1. tími: Verkefnið kynnt, kynning á áhrifaþáttum arkitektúrs og hvernig verkefnið skal vera unnið. Rannsóknarvinna hefst.

2. tími:  Rannsóknarvinna heldur áfram og nemendur og kennari fara út í nærumhverfið og finna mismunandi rými til þess að auka innblástur.

3. tími:  Vinna hefst.

4. tími:  Vinna heldur áfram.

5. tími:  Vinna klárast, ljósmyndir teknar. Í lokin er yfirferð þar sem módelin eru skoðuð og nemendur segja frá sinni sköpun.

Bjargir : Afgangs pappír, leir, spýtur, plast, pappi og í raun hvaða efni sem hægt er að endurnýta, rusl eða afgangar. Lím, límbyssa, skæri og skurðarhnífar. 

 

Lærdómsviðmið: þekking-leikni-hæfni

 

Að nemendur:

 

  • Þekki mismunandi eiginleika rýma, forma og tengsl þeirra við upplifanir okkar og tilfinningar.

  • Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.

  • Öðlist hæfni í rýmislæsi og skapandi hugsun.

  • Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.

  • Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.

  • Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.

  • Ölist hæfni í að tjá tilfinningar og upplifanir í gegnum list.

Formfræði

Myndir/ Bylgja Lind Pétursdóttir 

bottom of page