top of page

Rými og tilfinning

Framkvæmd :

Nemendur búa til tvö þrívíð rými. Þeir byrja á að velja sér tvær ólíkar tilfinningar, aðra slæma og hina góða. Nemendur vinna rýmin eins og módel þar sem markmiðið er að skapa rými sem minna á tilfinningarnar. Þegar rýmin eru tilbúin eru teknar myndir af þeim. Í lokin eru rýmin svo yfirfarin og nemendur útskýra af hverju tilfinningarnar voru valdar og hvað það er í rýminu sem endurspeglar þessar tilfinningar. Hér reynir á skapandi hugsun og úrlausnir þar sem niðurstaðan er óljós og gæti komið óvart. Einnig eru nemendur minntir á sjálfbærni, með því að endurnýta pappa og pappírs afganga til þess að skapa nýtt form. 

 

Áætlaður tími : 6 kennslustundir

 

1. tími: Verkefnið kynnt, kynning á áhrifaþáttum arkitektúrs og hvernig verkefnið skal vera unnið. Rannsóknarvinna hefst.

2. tími: Rannsóknarvinna heldur áfram, nemendur og kennari fara út í nærumhverfið og finna mismunandi rými til þess að auka innblástur.

3. tími:  Vinna við rýmin hefst

4. tími:  Vinna heldur áfram

5. tími:  Vinna heldur áfram

6. tími:  Vinna klárast, ljósmyndir teknar, í lokin er yfirferð þar sem módelin eru skoðuð og nemendur segja frá sinni sköpun.

Bjargir : Afgangs pappír, leir, spýtur, plast, pappi og í raun hvaða efni sem er og hægt er að endurnýta rusl eða afganga í verkið. Lím, límbyssa, skæri og skurðarhnífar. 

Lærdómsviðmið : þekking - leikni - hæfni

Að nemandi:

  • Þekki mismunandi eiginleika rýmis

  • Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.

  • Öðlist hæfni í rýmislæsi og skapandi hugsun.

  • Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.

  • Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.

  • Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.

  • Ölist hæfni í að tjá tilfinningar og upplifanir í gegnum list.

 

 

Grunnþættir :  Sköpun, læsi, sjálfbærni

Hæfniþrep :     Hæfniþrep 3

 

Tímalengd :     6 kennslustundir

Formfræði

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir 

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir 

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir 

bottom of page