Grunnur til þess að skapa
Námsefni í listgreinum á framhaldsskólastigi
Grunnþættir : Sköpun, læsi,
Hæfniþrep : Hæfniþrep 2
Tímalengd : 3 kennslustundir
Litir fá nýtt líf
Framkvæmd:
Nemendur finna gömul blöð, rusl og tímarit. Því næst er hafist handa við að rífa í sundur og finna búta sem á að nota. Bútarnir eru límdir á blað og þeir látnir mynda listaverk. Við gerð myndarinnar verður unnið eftir spurningunni "Hvað finnst mér fallegast við náttúruna?". Nemendur æfa sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós. Nemendur efla myndrænt læsi og eru minntir á sjálfbærni með efnisnotkun verkefnisins.
Áætlaður tími : 3 kennslustundir
1. tími: Verkefnið kynnt og vinna hefst.
2. tími: Vinna heldur áfram.
3. tími: Vinna klárast, í lokin eru umræður, myndir skoðaðar og nemendur segja frá sinni sköpun.
Bjargir: Blöð, arkir, lím, pappírsbútar, gömul tímarit og rusl.
Lærdómsviðmið : þekking - leikni - hæfni
Að nemandi:
-
Þekki litafræðina og hvernig litir blandast saman í myndverki.
-
Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.
-
Öðlist hæfni í myndlæsi og skapandi hugsun.
-
Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.
-
Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.
-
Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.

Litafræði
Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir