top of page

Teikna út frá slettu

Framkvæmd : 

Nemendur eru með blað fyrir framan sig og málningu, þeir byrja á að setja eina málningarslettu á blaðið, svo halda þeir áfram með myndina og teikna út frá slettunni. Markmiðið er að kenna leiðir til þess að hefja sköpunarferlið, því oft er erfitt að byrja á auðu blaði. Nemendur þjálfa hugmyndaflugið og myndlæsi. Nemendur efla sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós. 

 

Áætlaður tími : 2 kennslustundir

 

1. tími: Nemendur setja málningarslettu á blað og byrja svo að vinna út frá því. 

2. tími: Nemendur klára myndirnar og í lok tímans er yfirferð á verkum, nemendur lýsa sínu verki. 

Bjargir : Pappír, málning, penslar, blýantur og litir,  

 

Lærdómsviðmið : þekking - leikni -hæfni

Að nemandi:

  • Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.

  • Öðlist hæfni í myndlæsi og skapandi hugsun.

  • Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.

  • Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.

  • Öðlist þekkingu á sjálfbærni.

 

 

Grunnþættir :  Sköpun, læsi, sjálfbærni

Hæfniþrep :     Hæfniþrep 2

 

Tímalengd :     2 kennslustundir

Sköpun

Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir 

bottom of page