Grunnur til þess að skapa
Námsefni í listgreinum á framhaldsskólastigi
Grunnþættir : Sköpun, læsi,
Hæfniþrep : Hæfniþrep 2
Tímalengd : 3 kennslustundir
Þungt og létt
Framkvæmd:
Nemendur rannsaka myndbyggingu flatar. Nemendur skoða þyngd og léttleika í myndum og hvernig við skynjum myndir. Því næst gera nemendur skissur þar sem þeir leika sér að raða inn á myndflötinn og skapa mismunandi áhrif eins og spennu, ró og jafnvægi, með því að nota þyngd og léttleika. Í lokin skapa nemendur mynd þar sem myndefnið er frjálst en viðfangsefnið er þyngd og léttleiki. Þetta verkefni reynir á ígrundun og hugleiðingar um hvað við skynjum sem þyngd og hvað sem létt, og af hverju. Nemendur æfa sköpunarkraftinn í þessu verkefni, þar sem útkoman er óljós þegar haldið er af stað og hvað sem er getur komið í ljós. Nemendur efla myndrænt læsi. Nemendur auka færni í að skynja samsetningu og uppbyggingu myndflatarins
Áætlaður tími : 3 kennslustundir
1. tími: Verkefnið kynnt og rannsóknarvinna hefst.
2. tími: Vinna við skissur heldur áfram og vinna við lokamynd hefst.
3. tími: Vinna klárast, í lokin eru umræður, myndir skoðaðar og nemendur segja frá sinni sköpun.
Bjargir: Blöð, arkir, blýantur, penni, málning og litir.
Lærdómsviðmið : þekking - leikni - hæfni
Að nemandi:
-
Kynnist uppbyggingu myndflatar og áhrifamætti þyngdar og léttleika og samspili þessa þátta.
-
Geti unnið á sjálfstæðan hátt og sýni frumkvæði.
-
Öðlist hæfni í myndlæsi og skapandi hugsun.
-
Geti tekið þátt í umræðum um viðfangsefnið.
-
Öðlist hæfni í að tjá skoðanir sínar.
-
Öðlist hæfni í að tjá sig um eigin listsköpun.

Samsetning
Mynd / Bylgja Lind Pétursdóttir